Lena
Það sætasta í þessum heimi eru ....
12.09.2006 15:22:47 / lena

komið af leiðarlokum

Jæja ég r að hugsa um að kveðja þessa blog síðu opinberlega eins og sést hef ég nú ekki verið sú duglegasta að blogga hingað til :) en ar samt að skoða gamlar bloggfærslur og helv... hef ég verið öflug í fyrra :haha: en jamm nú er ég bara komin á fullt í skólanum og efast stórlega um að ég hafi nokkurn tíma til þess að vera að þessu á meðan jújú stúlkan skellti sér í hjúkkuna og OMG hva þetta er mikill lestur og audda tók gamal kunn tilfinning yfirhöndina Allir eru miklu gáfaðari en ég 8| en þettavonandi gengur jú og ég er flutt farinn að búa með henni Evu gellu þannig við erum sambýlingar :haha: þetta var reyndar miklu fyndnar um helgina í sjallanum :) en jamm þetta er allt í gulli

en endilega látið heyra í ykkur svona af og til :)

bæbæ Lena Rut


» 5 hafa sagt sína skoðun

13.06.2006 12:19:53 / lena

jæja vinna bara

OK allright sumarfríið búið ég er komin aftur hjemm til Akureyris.

Við erum samt að tala um að Danmörk er alveg land fyrir mig. Mig langaði svo alls ekkert heim en svo stóð ég þarna á flugvellinum 2 sek frá því að ákveða að missa af fluginu en fékk sms frá Heiði syst og ákvað að fara heim. ég veit það þó að minnsta núna að ég kem alveg pottþétt til með að flytja til Danmerkur þegar ég er búin með hjúkkuna :)

En jamm ég kom til Dk um miðja nótt og Begga mín og Gummi tóku á móti mér, daginn eftir þá tók ég lestina alveg ein niður í miðbæ kaupmannahafnar og hitti Beggu mína við fórum svo á rölt og fórum í siglingu, túristasiglingu :) ótrúlega gaman. svo var bara grillað og drukkinn bjór þegar heim var komið :) Daginn eftir fórum við á rölt og fórum svo á Mugison tónleika niður á eina höfnina, sem voru alveg snilld en hefðu mátt vera lengri svo röltum við þarna um eitthva og drukkum bjór:) á Föstudaginn dró ég strákana Svavar og Pétur niður í Lyngby sem er smá verslunarkjarni, þar röltum við um fengum okkur bjór og biðum eftir Beggu :) svo þegar Begga kom fórum við stelpurnar á skrall :) Begga fór með mig á þennana líka geggjaða kokteilbar OMG :) á Laugardeginum var svo stelpudjamm hjá okkur stúlkum :) eins og Beggga segir ekta stelpudjamm drama og allan pakkan :) Í þynnkuni á sunnudaginn fórum við svo í tívolíið ég var nú ekki alltof bjartsýn á það þegar ég kom en eftir fyrsta litla rússíbanan þá var þetta flott mallinn höndlaði þetta létt :) Á mánudaginn fórum við svo bara í bíltúr til Hróaskeldu ótrúlega fallegt og svo niður á strandstað kaupmannhafnarbúa

Svo var bara farið heim á Þriðjudaginn en eins og ég sagði áður þá langaði mig ekkert heim :)

En annars er allt bara í rútínu ég er bara að vinna og þvælast, bakaði þessi dýrindis skinkuhorn í gær og bananabrauð !!!!!

En jamm djamm um helgina ótúlega gaman :) frekar svona slappt á föstudaginn en geggt á laugardaginn  :) nenni ekki að spjalla um það frekar þetta var bara eins og venjulega : luv ja :)


» 5 hafa sagt sína skoðun

29.05.2006 22:21:08 / lena

er tími á blogg eða !!!!

Jæja eitthva er maður nú búin að vera latur við þetta :)

En jamm ég er komin í 2 vikna sumarfríið mitt, var fyrir sunnan um seinustu helgi með simma bró á landliðsæfingum unglinga í handbolta :) geggjað fjör á okkur systkinum , aftur á móti var ég auðvitað stoppuð af blöndóslöggunni á 105 km hraða hjá blöndósi en nei nei var þetta ekki sami lögreglumaður og stoppaði mig seinast þegar ég var stoppuð einnig á 105 km hraða örlítið bjánalegt :) en helgin var góð við fórum í bláa lónið og svo í mat í þorlákshöfn :)

En ég komst að því í dag að til eru ennþá heiðarlegir einstaklingar í þessu samfélagi þannig er það að ég fór á föstudaginn að kjósa :) en fór fyrst og skipti 25 þús íslenskar í 1950 danskar, en þegar ég hljóp yfir  á sýslumann hef ég misst peningin úr vasanum og fattaði það ekki fyrr en ég kom heim:( ekki nóg með það  heldur hringdi lögreglan í mig í dag og sagði að peningurinn minn væri í landsbankanum þá hafði einhver heiðarlegur maður fundið peninginn og skilað honum inn í bankann og amma sniðuga hafði farið upp á lögreglustöð og tilkynnt peninginn glataðann :) ótrúleg svo gamla því ekki hafði ég þá trú á samfélaginu að það myndi einhver skila peningnum :)

já já það er svo bara Dk á morgun ég hlakka ekkert smá til er  að sprionga við begga ætlum á tónleika með mugison á fimmtudaginn og ég held  að það verði skemmtileg upplifun að fara á íslenska tónleika í DK en ég læt ykkur vita betur um það seinna seee ja bleble


» 4 hafa sagt sína skoðun

02.05.2006 23:41:59 / lena

hallú

hæhæ  Ekki veit einhver um far suður á föstudaginn og aftur norður á sunnudaginn :)


» 1 hafa sagt sína skoðun

25.04.2006 19:05:22 / lena

nýtt nýtt

kominn með nýtt blogg hér r slóðin http://LenaRut.minnsirkus.is http://LenaRut.minnsirkus.is/Blogg/ endilega kíkið við LUv ja !ǐď萀Ϙ匭婉㩅ㄠ瀶㭴䌠䱏剏›昣㙦〶㬰䘠乏ⵔ䅆䥍奌›牁慩㭬洠潳戭摩⵩潦瑮猭穩㩥ㄠ⸲瀰㭴洠潳愭獮⵩慬杮慵敧›卉※獭ⵯ慦敲獡⵴潦瑮昭浡汩㩹攀瑮

» 4 hafa sagt sína skoðun

06.04.2006 19:16:52 / lena

Bang Bang

OK Nýja uppáhaldslagið mitt heitir BANG BANG með Audio Bullys alveg flott sko og svo er annað sem heitir Snake sem er líka soltið flott, já já broskallarnir bilaðir aftur, en jamm annars er búið að vera alveg ótrúlega mikið að gera eitthva. Er að vinna um helgina næstu en á þar af leiðandi frí um páskana, er að hugsa um djamm, bara edrú djamm er komin í pásu í augnablikinu, ágætt alveg að taka sér svona pásur inn á milli er það ekki eða ?????? Var fyrir sunnan um seinustu helgi og það var alveg frábært að komast aðeins úr bænum, nema það að ég ætlaði að fara heim á laugardaginn en það ver ekkert flug, þannig ég missti af innflutningspartýinu hjá þeim Elvu og Jóa, sem mér þykir alveg ömurlegt ég er ömurleg vinkona !!!!!!!! en ég lofa að bæta þér þetta upp elsku Elva mín Já og svona í lokin Fannar ég veit að þú saknar mín ekkert smá og þú vilt að ég komi aftur suður, þettta er bara afneitun hjá þér..... Frændi saknar litlu frænku sinnar hehehe ble ble í bili farið vel með ykkur......

» 3 hafa sagt sína skoðun

21.03.2006 19:40:33 / lena

spæling

Jammmmmm mig langar aftur suður !!!!!!!!!!!!!!!! en það verður bara aðeins að bíða :!::!:
annars er bara allt við það sama, geggt gaman eitthva. Ástdís og Tanja eru að hugsa um að koma norður um næstu helgi sem verður alveg dásamlegt, hlakka voða mikið til þess að sjá þær
Annars var ég á námskeiði í gær og í dag um umönnun heilabilaðra ég lærði alveg helling sem ég er ákveðin í að notfæra mér þegar ég er að annast heilabilaðann einstakling :haha: samtalsmeðferðir og svo svolítið sem kallast endurminninga meðferð, spá í því að það er nóg fyrir fólk sem kannski er búið að missa allan lífsvilja að fá einhvern hlut í hendurnar og þá streyma minningarnar til baka og kannski vaknar einhver lífsvilji, þetta er eins með allar persónur ef ég tek mér í hönd til dæmis dót sem ég átti þegar ég var lítil þá streymir til mín fullt af minningum tengdar þessum hlut hvort sem þær eru slæmar eða góðar :haha: Svona getur maður hjálpað heilabiluðum að vinna úr ef til vill einhverju atviki sem átti sér stað í æsku og hefur setið í þeim, þau hafa tekið með sér í bakpokan 8|

Annars er allt gott að frétta :haha: ég fór aftur í svona hugsunagang um daginn eins og sést á seinasta bloggi....... Hvenær er of mikið of fljót...........
of miklar uppfinningar...... of mikið gaman........... hvenær er til of mikils mælst ...........og hvernær verður þetta allt saman óbæranlegt, bara svona eitthva til þess að spá í
ble ble luv ja


» 6 hafa sagt sína skoðun

14.03.2006 16:30:45 / lena

jújú þetta er ég

uhhhmmmm eitthva var fólk farið að kvarta yfir blogg leysi :haha: sorry haven't got time en annars er allt bara eins og venjulega, ég fór á djammið :haha: geggt gaman eins og venjulega ég er að vinna :haha: geggt eins og venjulega og ég er ég geggt gaman eins og venjulega :haha:

Ég hef samt verið að spá Hvenær fær maður nóg!!!!!!! Hvað er mælieinigin nóg

maður verður að vinna yfir sig til þess að fá nóg, !!! af peningum, til að vita hvenær maður eigi að stoppa,,,,

Maður lætur vaða yfir sig á skítugum skónum þar til maður fær nóg....

Stundum fær maður svo nóg af öllu að maður er að springa,

en stundum ekki !!!!!!!

Stundum fær maður alltoffff mikla athygli en stundum ekki nóg........

stundum borðar maður yfir sig en stundum ekki nóg !!!!!

Stundum er maður ánægður með sjálfan sig en stundum ekki nóg...

Stundum er maður sjálfum sér nóg en stundum ekki .....

En jæja nenni ekki þessari vitleysu, er etta ekki NÓG :haha: sætt orð og hryllilega mikið notað annars kveð ég að sinni þið farið vel með ykkur eins og venjulega

seee ja bleble


» 5 hafa sagt sína skoðun

02.03.2006 12:56:23 / lena

svefnleysi

Seinasta helgi var alveg pain, var að vinna bæði á hlíð og á greifanum, gekk alveg ágætlega nema þegar ég ætlaði að leggjast niður og fara að sofa, nei nei ekki hægt vinan, ég var svo upptjúnuð eiithva, fór svo að vinna á næturvöktum, þannig ekki skánaði það sólarhringurinn alveg í klessu, núna er ég svo ægilega þreytt að ég hef aldrei verið þreyttari (segir maður þetta ekki alveg þar til maður verður þreyttur aftur eða ) En svona er þetta, þannig þið sjáið að ég hef ekkert verið að gera neitt sérstakt nema að vinna og sofa, En næsta helgi þá vinnur maður sig upp, ég er að spá í að fá mér í glas í fyrsta skipti síðan ég man ekki hvenær, þannig það verður tekið á þvi, læt ykkur vita hvernig gekk, annars er allt bara í blóma, er eiginlega alveg búin að jafna mig eftir þessa aðgerð, gerði heiðarlega til raun til þess að þrífa bílinn minn en í staðin bjó ég til skjöldótta belju, jæja ég ætla að fara að skutla Hrannari í vinnuna svo ég læt heyra í mér seinna

bleble luv ja

p.s broskalla takkarnir eru eitthva geggt bilaðir þannig..........


» 4 hafa sagt sína skoðun

22.02.2006 22:07:17 / lena

betra seint en aldrei

jújú stundum breyttist einn dagur í marga :haha: en ég ætla núna loksins að hafa mig í það að svara þessu klukki sem var baulað á mig frá Beggu og suzie

4 staðir sem ég hef unnið á

  • Strax B-98 0
  • Á Stiga vél við að slá en var færð furðu fljót í blómin skil ekki alveg afhverju :haha:
  • Dvalarheimilinu Barmahlíð
  • Taugalækningadeild Landspítalans í Fossvogi

4 bíómyndir sem ég gæti horft á aftur og aftur:

  • Allar Disney myndirnar
  • Hróa Hött og karlmenn í sokkabuxum
  • Braveheart
  • Rómeo og Júlía

4 staðir sem ég hef búið á:

  • Akureyri :haha: gæti auðvitað ekki verið meiri akureyringur
  • Kópavogur
  • Reykhólar !!! bíddu bíddu hvar er það :haha:
  • og svo auðvitað endar maður aftur á Akureyri

4 sjónvarpsþættir sem eru í uppáhaldi:

  • OC
  • Friends
  • Desperat Houswifes 
  • Lost
  • Strong Medicene 

4 staðir sem ég hef heimsótt í fríum:

  • Írland
  • Þýskalandi
  • Ásbyrgi
  • Vaglaskógur

annars hef ég ferðast víða í huganum :haha:


4 heimasíður sem ég skoða daglega:

Hallóóóó maður flakkar bara eitthva


4 máltíðir sem ég held upp á:

  • Fahitas með kjúkling
  • Allur kínverskur matur! 
  • Íslenskt lambalæri með öllu meðlæti 
  • Og svo auðvitað bara allt sem við systur eldum :haha:

4 bækur sem ég les oft:

  • Ísfólkið
  • Ríki ljósins
  • Íalands Atlas
  • Bækurnar eftir Birgittu Halldórs


4 staðir sem ég myndi vilja vera á núna:

  • Einhverstaðar á heitri sólarlandarströnd
  • Undir sæng að kúra
  • Í Reykjavík í stelpuferð með Heiði Systir og stelpunum
  • Í Danmörku hjá Beggu minni á leið í crús um Evrópu


4 manneskjur sem ég ætla að klukka:

Ég ætla að vera svo hryllilega góð manneskja að ég ætla ekki að klukka neinn af hreinni hjartagæsku :haha:

Annars er allt gott að frétta, skrapp í sjallan á Jet black Joe um helgina, sem var auðvitað geggt gaman :haha:  en annars er allt bara eins er bara að vinna, vinna og vinna þannig þið fáið lesninguna bara seinna

seee ja bleble


» 2 hafa sagt sína skoðun

16.02.2006 19:03:49 / lena

arrrggg

OK ég er búin að reyna að blogg a 3 og það dettur alltaf út, farin að finna til í brjóstvöðvunum svo ég geri þetta bara á morgun blerblebler

» 6 hafa sagt sína skoðun

07.02.2006 16:38:54 / lena

trallallllaaaa

Það er að koma að því 8| 11 í fyrramálið :haha: gott að frétta annars soltið kvíðin sérstaklega eftir að ég horfði á nip tuck um daginn en þetta verður geggt :) see ja vona að þið verðið með mér í huganum ;)


» 7 hafa sagt sína skoðun

26.01.2006 22:02:16 / lena

smúúsííí

jújú ég hef hér með lokið leit minni um vinnumarkaðinn :haha: ég er að vinna á Greifanum og á Hlíð :haha: þannig að vestur hugmyndinn er eiginlega liðin undir lok :S   Ég sver það að þegar ég var búin að skrifa undir á báðum stöðum fannst mér ég vera 10 kg léttari, þetta vinnuleysi var alveg að fara með mig  Þannig að allt er að lifna við einhvernveginn sem er mjög jákvætt :)

En jamm það er komin hryllingsmynd af mér sem á að fara í Árbókina OMG ég held að ég verði að fara að sætta mig við það hvernig ég lít út 8|

VAR'UÐ EKKI FYRIR VIÐKVÆMA

hryllings mynd


» 6 hafa sagt sína skoðun

23.01.2006 15:44:22 / lena

áframhaldið

jújú fór í sjallann 8| geggt gaman nema hverjum tekst öðrum en mér að blása upp úr öskubakka framan í sig á meðan verið er að tala :haha: En þetta var algjör snilld, stelpudjamm nema að óðinn fékk að vara með :haha: Þau fóru svo aftur daginn eftir sakna ykkar ekkert smá :(  Ég er eitthva undarlega að hugsa um það að flytja vestur þessa daganna, en veit ekki ætla að gefa mér vikuna í að spá í þessu, reikna samt með að ég verði bara heima 8| jebb annars gengur allt sinn vanagang  16 dagar í daginn minn :haha: hlakka ekkert smá til. ;) Heiður systir ætlar að koma með mér suður og halda í hendina á mér þegar ég vakna, samt er ég svona aðeins kvíðabundin en það kemur :haha: en jæja luv ja bleble

» 4 hafa sagt sína skoðun

17.01.2006 20:59:57 / lena

ekkert spennandi

Jamm, komin aftur heim enn er auðvitað strax farin að plana næstu suðurferð 8| sem verður reyndar aðeins meira spennandi en þessi !!!!!!:haha: OMG hva ég hlakka til, og svo held ég að Heiður systir ætli að koma með líka, (held að hún treysti ekki alveg stóru systir sinni í þetta einni )

Annars var helgin bara góð, nennti svo á endanum ekki á skímó heldur endaði bara heima að horfa á video :haha: sem var bara alveg ágætt. Annars er voða lítið að frétta, er bara búin að vera að brasa og reyna að slaka aðeins á en svo verð ég að fara að fara að vinna er að verða frekar biluð á þessu, ég var bara vinsamlegast beðin um að slaka aðeins á ef ég ætlaði ekki að enda upp alveg snar geðveik, og reyndar er þetta búið að vea alveg voða indælt ég að minnsta kosti er farin að geta hugsað hlutina án þess að fara í eitthva ömurlegt panik ástand :haha: og farin svona að taka aðeins betur á þessu öllu saman, held að mér hafi ekki liðið svona ágætlega og verið svona róleg í ekkert smá langan tíma. Alveg ágætlega bjartsýn á allt saman.

En það er svo bara djamm um næstu helgi eins og alltaf því þá ætlar sunnan fólkið mitt að koma í bæinn :haha: Ástdís og co :haha: algjört æði skæði

luv ja nenni ekki meiru  bleble

 jú heyriði ég var að uppgötva country tónlist og lag sem heitit pictures sem er svo hryllilega flott :)


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6